Auglýsing

Prófíll

  • Annað: A stunning male seeks double-jointed supermodel who owns a brewery and grows her own pot. Access to free concert tickets a plus, as is having open minded twin sister.

Gullmolinn

"Serious sport has nothing to do with fair play. It is bound up with hatred, jealousy, boastfulness, disregard of all rules and sadistic pleasure in witnessing violence: in other words it is war minus the shooting."
-George Orwell

Fluttur

13. júní 2008 klukkan 09:23
Búinn að flytja bloggið mitt á stigsson.is þrátt fyrir að sú síða sé enn í vinnslu og sé rétt orðin fokheld.
Sturla Stígsson
Engin athugasemd

Fyllibytta á patró

10. júní 2008 klukkan 11:24
"Stórfrétt" á Visir.is um daginn af einhverjum gaur sem var meisaður af lögreglu á sjómannaballi. Myndband náðist af atburðinum og fannst þeim er setti myndbandið á netið að aðfarir lögreglu hefðu verið harkalegar þar sem maðurinn var orðinn "rólegur" þegar handtakan átti sér stað.




Viðkomandi sleppti náttúrulega að minnast á það í myndbandinu sínu að sá handtekni hefði verið búinn að rota einn og skalla annan á ballinu . Lögreglan gaf manninum tækifæri á að koma með góðu en hann kaus að fylgja ekki eftir fyrirmælum lögreglu sem þurfti þá að yfirbuga hann með valdi. Þegar ég skoðaði myndbandið í gær þá sást á kommentunum að langflestur meirihluti þeirra sem tjáði sig um málið var á bandi lögreglunnar. Maðurinn hafði farið með um með ofbeldi á ballinu og það kom ekki til greina að leyfa honum bara að "labba burtu". Ég kíkti svo aftur á þetta í dag og ætlaði að tékka á fleiri kommentum, en hvað sá ég. Jú sá er setti myndbandið inná hafði eytt út ÖLLUM kommentum sem voru sammála lögreglunni í þessu máli, eða 80-90% allra kommenta þarna. Já, sannleikurinn getur stundum verið sár.
Sturla Stígsson
1 athugasemd

Boston Baby!

09. júní 2008 klukkan 14:19
Nú hljóta Kalli og Guðni að vera kátir. Boston búið að vinna fyrstu 2 leikina og komnir með aðra höndina á titilinn.

 Því miður fyrir þá kappa þá er þessi "önnur hönd" ekki mikils virði enda man ég enn eftir því þegar mínir menn í NY voru 3-2 yfir á móti Houston hér um árið (jæja, fyrir 14 árum...hvað tíminn flýgur). Það er enn brennimerkt inn í hausinn á mér myndbrotið af Charles Smith endurtaka í sífellu eftir leik 5 "One win away, one win away!" og svo bráðnunin í leik 6 og 7. Ég vill þó ekki falla í þá gryfju eins og margir að kenna John Starks um að Knicks hafi ekki unnið, þrátt fyrir vægast sagt hörmulega hittni í lokaleiknum. Þeir hefðu jú aldrei komist í leik 7 ef ekki hefði verið fyrir hann. Þeir hefðu líklegast ekki komist upp úr annari umferð úrslitakeppninnar ef ekki hefði verið fyrir hann. Ég vill því taka "the high road" og kenna Pat Riley um allt saman. Það var hann sem skildi ísjökulkaldan Starks inná í stað þess að setja Ronaldo Blackman á völlinn. Og Riley sjálfur hefur viðurkennt það .

En aftur að Celtics og Lakers. Boston menn eru í bílstjórasætinu eins og er eftir tvo sigra á heimavelli. Verst að þeir eru svo slakir á útivelli í úrslitakeppninni að íslenskt 1.deildarlið ætti líklegast séns í þá þar. Og næstu þrír leikir eru í Los Angeles.
Sturla Stígsson
NBA, Körfubolti | Engin athugasemd

Lakers Vs. Celtics

05. júní 2008 klukkan 10:44



Lakers og Celtics í the Finals. Újé. Gæti ekki hafa verið betra. Spurning að leita uppi gamla klassíska PC leikinn sem allir körfuboltaunnendur á mínum aldri ættu að kannast við.

Get ekki verið annað en þakklátur með að þessi lið mætist í úrslitunum. Ýmindið ykkur bara hryllingin ef við hefðum fengið Spurs Vs. Pistons II: The Horror continues.
Sturla Stígsson
NBA, Körfubolti | Engin athugasemd

Cellphones are EVIL!

28. maí 2008 klukkan 22:24
Sturla Stígsson
Engin athugasemd

Bond. James Bond

26. maí 2008 klukkan 19:47
Sturla Stígsson
Engin athugasemd

Ert ekki að grínast!

25. maí 2008 klukkan 13:20








Og talandi um Big Shot Rob, þessi ungi Spurs-ari gefur honum ekkert eftir.






Sturla Stígsson
NBA, Körfubolti | Engin athugasemd

NBA blogg dagsins

21. maí 2008 klukkan 22:03
Sturla Stígsson
NBA, Körfubolti | 2 athugasemdir

When Nature Strikes Back

21. maí 2008 klukkan 21:55



Svakalega er gaurinn á myndavélinni góður vinur...
Sturla Stígsson
Engin athugasemd

Dagurinn sem Mike James og Bonzi Wells voru kynntir sem leikmenn Hornets

20. maí 2008 klukkan 19:58
Hornets hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að hafa fyrr í vetur skipt Bobby Jackson til Houston fyrir hinn sjálfumglaða Bonzi Wells og Mike James . Allir þrír sökkuðu reyndar hrikalega í úrslitakeppninni þannig að það skiptir ekki máli. Annars var hápunkturinn á þessum skiptum þegar Bonzi og 'My Games' voru kynntir sem leikmenn Hornets...